Ég var búin að gleyma því hvað reykjavík er falleg og notaleg á nóttinni. Myrkrið er svo svart og öll ljósin sem gera hana svo notalega. Ég var eiginlega bara í smá jólastuði þegar ég keyrði út úr bænum í morgun :) Veit að það er pínu snenmnmt en það er svo notalegt þegar allt verður svona svart og kalt og maður er bara með kertaljós og notalegheit inni hjá sér. Get ekki sagt að flugið hafi verið eitt eða neitt enda slökknaði á mér um leið og farið var í loftið og ránkaði við mér um lendinu. Þar sem ég hef ekkert að gera í dag nema koma mér til Bristol ákv ég að take rútuna (Bara aðra leið) svona til að sjá aðeins og líka vegna þess að ég var búin að kaupa miðanna án þess að fatta að þetta væru bus miðar en ekki train!! Allavega það munaði bara einum klukkutima þannig ég er ekkert ósátt við þetta.. . Og bretar hafa ekki öllið mér vonbrygðum. Eftir að hafa keyrt út úr flötu landbúnaðarlanslagi og inni úthverfi london byrjar viðbjóðurinn. Það er ekkert smá skítugt allt hérna og húsin eru í niður.. nei þau eru bara ónýt og rusl ut um allt. Finnst eins og eg sé aftur komin til Glasgó. Leiðilegt hvernig þjóð fær á sig svona óskemmtilegan stimpil ; vondur matur og miklir sóðar!!! Komst á rétta brautarstöð en það var alls ekki sá staður þar sem næsta farartæki fór frá!! Það tók mig sem sagt 44 mín af 45 mögulegum :-l að finna staðin og koma mér uppi þessa indislegu pökkuðu rútu sem lyktar svo rosalega af svita og súru eitthvað ... hugsið ykkur! Ég sem er með lykt á heilanum og er eiginlega frekar mikil lyktarperri ef eitthvað er... já eg er að drepast hérna inni. Og það eru einungis tveir og hálfur tími eftir . Nú er bara að láta ýmindunaraflið taka völdin og stitta sér stundir í vitleysu hugsunum og sögum sem verða til út frá því! Síðast þegar ég var hér í London var svo mikil rigning að það má eiginlega segja að ég hafi aldrei séð neitt hér. Við fórum í hinn margfræga skoðunarhring í tvöföldum strætisvagni. Völdum okkur einn sem var lokaður svo við myndum ekki rigna niður! Góð hugmynd á þeim tíma! 1 min eftir að við settum inn í hann var orðin svo mikil móða á gluggunum að við sáum ekki neitt. Jú annars maður má ekki gera litið úr þessu. Það var lítill rennanlegur gluggi efst sem við renndum frá og sáum london ut um hann ;) Þar sem ég dvaldi hér bara í sólarhring þá er þetta mín mynd. Það hefði verið rosalega gaman að geta verið hér á næstuhelgi og upplifa að vera aðeins í borginni, þó það væri ekki nema fyrir að vera í görðunum, kaffihúsunum og gera ekki neitt! Það hefði verið æði. En eg fæ einn dag, föstudag, til að trítla hér um og sjá mannlífið. Þetta verður annars mjög hættulegt! Ég ein og fullt af búðum... ég er búin að gera samning við mig að fara bara í mangó og svo bara trítla mér eitthvað þar sem ég get notið þess að vera í mannmergðinni! En þar sem allir vita þá er ég ekkert sérstaklega góður samningsmaður þegar kemur að því að semja við mig! En það er alltaf hægt að vera bjartsynn og trúa á sjálfan sig! Ég er ekki að trúa því að eg hafi aulast til að kaupa þessa miða. Sparaði þvílíkt en guð minn góður, ég verð sennilega að fá mér ansi mikið af hvítvini þegar ég loks kemst á áfangastað! Klukkan er nuna hálf þrjú á minum tíma og ég fór út heima hjá mér fyrir níu og hálfum tíma og á alveg 2 tíma eftir!!!! Er svo fegin að hafa tekið evensence diskin með mér til að stytta mér stunidr. Er með hann í botni í eyrunum eins og sannur rokkari!
Var að spá í hvort einstaklingurinn hér i mannmergðinni skilgreindi sig ekki öðruvísi en við, hvort hann er þá meiri einstaklingur heldur en við? Getur fengið að vera með sitt á sinn hátt. Ef við hittum einhvern nýjan þá hættum við ekki né nýji einstaklingurinn fyrr en við erum búin að finna einhvern sem við þekkjum sameiginlega eða getum tengt okkur þannig að við vitum svona nokkurnvegin hvaðan hinn aðalinn kemur og jafnvel hverra manna viðkomandi er. Þetta gerir það að verkum að það þekkja í raun allir alla eða amk eitthvað um alla. Væri maður ánægðari við að búa í svona samfélagi eins og er hér í stórborginni? Væri maður meiri einstaklingur sem fengi að njóta sína á sínum forsendum? Þyrfti maður ekki að alast upp hér til að geta gert þetta. Er ekki búið að ala uppi manni þessa skylgreiningu og tengingu sem veitir manni ef til vill öryggi?
Er komin á hótelið vvvvvííííí. ;) Geðveikt risastórt herbergi og BADKAR úúúhhú! Eftir að hafa hent mér í rúmmið í smá tíma fann ég fyrir hungrinu! Þá var bara að skella sér á veitingastaðinn. Mikið rosalega er það skrýtið að borða einn. Ég hef aldrei gert þetta áður, það var alls ekki pínlegt eða neitt svoleiðis það var bara skrýtið. Eftir matin fór ég á barinn í þeirri von að hitta einhvern til að tala við. Félagsleysið var alveg að segja til sín. En nei ekki heppin þar en naut að sjálfsögðu hvítvinsins og trítlaði mér svo bara í háttinn. Dag eitt á námskeiðinnu er lokið. Þetta var rosalega fint. Ég lærði alveg fullt og er rosalega ánægð með þetta.
Er að fara að taka mig til fyrir dinnerinn, ætlum öll að hittast og borða saman: Þetta verður eitthvað áhugavert!
Heyrðu þetta var bara dundur stuð! borðuðum á okkur gat, drukkum og blöðruðum út í eitt. Átti áhugavert samtal við annan indverjan... ég myndi ekki vilja heyra upptöku að því! ég svaraði bara svona sirka hvað ég hélt að hann væri að tala um hehehe.. damn it hvað er erfitt að skylja ensku með indverskum hreim!!
Dagur 2 var líka rosalega finn. Lærði helling en var frekar þreytt þannig að ég verð að viðurkenna að ég dottaði svolitið þegar var verið að fara yfir hluti sem ég hafði engan áhuga á og á aldrei eftir að nýta mér. Kvöldið var rólegt enda var ferðalegið að segja til sín... gat samt ekki farið bara beint uppá herbergi.. það er svo rosalega leiðilegt að hanga þar einn þannig ég fór út að borða með einu stelpunni á námskeiðinnu. Það var rosa fint, fórum á ítalskan stað í miðbænum og höfðum það huggulegt.
Dagur 3 á námskeiði: rosalega finn fyrsti fyrirlesarinn og þeir sem voru framan af morgni. Svo tók verkfræði hlutin við og þa var komin timi til að kveðja og halda til london J Það var strákur með mér á námskeiðinu sem var einnig að fara til london og ætlaði að eyða einhverjum dögum þar. Við ákváðum í hádeginu að hittast um kvöldið og borða saman. Sem var frábært! Tók lestina til london enda ætla ég mér að forðast rútur nú eins og ég get. Hehe
Ég átti rosalega skemmtilegt kvöld. Hittumst á Piccadilly circus og löbbuðum heillengi um Soho í leið að hinum rétta suchi stað. Staðurinn var æðislegur og suchi-ið fullkomið. Guð minn góður hvað við átum yfir okkur. Fengum okkur saki og vín þannig það komst helling af fisk fyrir:) ég var smá nervus að þetta yrði eitthvað vandræðalegt en þetta var frábært. Spjölluðum út í eitt um allt og ekkert, sem gerði það svo heimilislegt og venjulegt. Við sáum alla gestina af okkur og var eiginlega hent út af staðnum, þar sem allt var að loka og ekkert nema næturklubbar í boði tókum við lestina heim enda búin að vera eftir langan dag. Ég er ekkert smá glöð með þetta. Sá fram á að vera ein á hótelherberginu þetta kvöld. Ég er ekkert smá ánægð með að hafa fengið að upplifa miðbæin í london í ljósunum og látunum líka. Ég hef ekki mikin tíma á morgun en ætla samt að skjótast og skoða eitthvað smá áður en ferðalagið hefst með byrgðina.